Nemendur í 3. bekk eru nú að vinna að samþættu verkefni um himingeiminn í samfélagsfræði og upplýsingamennt.
Verkefnið er unnið í glærugerðarforritinu Power Point og hver nemandi býr til kynningu um eina reikistjörnu, sólina eða tunglið.Nemendur finna myndir og upplýsingar á Netinu og í bókinni, Komdu og skoðaðu himingeiminn.
Góð hugmynd fyrir bekkjarfulltrúa: Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness og Stjörnufræðivefurinn bjóða upp á námskeið fyrir þá sem hafa áhuga á stjörnufræði og stjörnuskoðun. Sjá nánar hér: http://www.astro.is/namskeid Ókeypis stjörnukort fyrir Ísland Í hverjum mánuði útbýr Stjörnuskoðunarvefurinn stjörnukort fyrir Ísland sem er dreift ókeypis á vefnum. | Verkefni nemenda um himingeiminn. Skemmtilegar síður sem tengjast himingeimnum |